Psalms 102

1Bæn hrjáðs manns, þá er hann örmagnast og úthellir kveini sínu fyrir Drottni. 2Drottinn, heyr þú bæn mína og hróp mitt berist til þín. 3Byrg eigi auglit þitt fyrir mér, þegar ég er í nauðum staddur, hneig að mér eyra þitt, þegar ég kalla, flýt þér að bænheyra mig. 4Því að dagar mínir hverfa sem reykur, bein mín brenna sem eldur. 5Hjarta mitt er mornað og þornað sem gras, því að ég gleymi að neyta brauðs míns. 6Sakir kveinstafa minna er ég sem skinin bein. 7Ég líkist pelíkan í eyðimörkinni, er sem ugla í rústum. 8Ég ligg andvaka og styn eins og einmana fugl á þaki. 9Daginn langan smána óvinir mínir mig, fjandmenn mínir formæla með nafni mínu. 10Ég et ösku sem brauð og blanda drykk minn tárum 11sakir reiði þinnar og bræði, af því að þú hefir tekið mig upp og varpað mér burt. 12Dagar mínir eru sem hallur skuggi, og ég visna sem gras. 13En þú, Drottinn, ríkir að eilífu, og nafn þitt varir frá kyni til kyns. 14Þú munt rísa upp til þess að miskunna Síon, því að tími er kominn til þess að líkna henni, já, stundin er komin. 15Þjónar þínir elska steina hennar og harma yfir öskuhrúgum hennar. 16Þá munu þjóðirnar óttast nafn Drottins og allir konungar jarðarinnar dýrð þína, 17því að Drottinn byggir upp Síon og birtist í dýrð sinni. 18Hann snýr sér að bæn hinna nöktu og fyrirlítur eigi bæn þeirra. 19Þetta skal skráð fyrir komandi kynslóð, og þjóð, sem enn er ósköpuð, skal lofa Drottin. 20Því að Drottinn lítur niður af sínum helgu hæðum, horfir frá himni til jarðar 21til þess að heyra andvarpanir bandingjanna og leysa börn dauðans, 22að þau mættu kunngjöra nafn Drottins í Síon og lofstír hans í Jerúsalem, 23þegar þjóðirnar safnast saman og konungsríkin til þess að þjóna Drottni. 24Hann hefir bugað kraft minn á ferð minni, stytt daga mína. 25Ég segi: Guð minn, tak mig eigi burt á miðri ævinni. Ár þín vara frá kyni til kyns. 26Í öndverðu grundvallaðir þú jörðina, og himnarnir eru verk handa þinna. 27Þeir líða undir lok, en þú varir. Þeir fyrnast sem fat, þú skiptir þeim sem klæðum, og þeir hverfa. 28En þú ert hinn sami, og þín ár fá engan enda. [ (Psalms 102:29) Synir þjóna þinna munu búa kyrrir og niðjar þeirra standa stöðugir fyrir augliti þínu. ]
Copyright information for Icelandic